Ef þú ert að leita að kynna þig fyrir bardagalistir, þá veistu að það er í ferðalag um sjálf-uppgötvun, sjálf-framför og líkamlega aga. Af þessum sökum hafa margir Bardagalistir kerfi af stigum kunnátta sem benda öðrum það afrek eru á sviði bardagalistir.
Svo kíkið á listanum hér að neðan til að fá hugmynd um hversu mörg stig af kunnáttu þar eru. Kunnátta mun ávallt birtast í einhverri mynd, hvort sem þú ert snillingur á Kung Fu eða Tae Kwon Do eða snillingur á skák eða poker spil. Við vonum að listinn er mjög upplýsandi, og að hún getur hvatt þú átt mikilsvert á sviði bardagalistir.
| Beltalitur |
Gráðunar gjald |
Gráðunarkröfur lýsing |
 |
Ekki gráðun |
10. Kyu
Þau sem byrja að æfa Ju Jitsu byrja öll með rautt belti, andstætt því sem þekkist í flestum öðrum austurlenskum sjálfsvarnaríþróttum. Eftir 3 mánuði hafa nemendur möguleika á að þreyta próf fyrir 9. kyu. |
 |
1.000 isk |
9. Kyu
Níunda kyu er fyrsta gráðan. Til þess að ná 9. kyu þurfa nemendur að hafa vald á helstu undirstöðuatriðum íþróttarinnar svo sem fallæfingum, spörkum og einföldum brögðum. Oft er 9. kyu prófið þreytt á sama tíma og 8. kyu prófið. |
 |
1.500 isk |
8. Kyu
Þau sem taka 8. kyu prófið þurfa að hafa vald á undirstöðuatriðum íþróttarinnar auk kunnáttu á grunntökum. Nemendur þurfa að sýna XX tök. Þriggja mánaða þjálfun þarf til að komast í næsta próf. |
 |
2.000 isk |
7. Kyu
Þau sem taka 7. kyu prófiið þurfa að hafa vald á undirstöðuatriðum íþróttarinnar auk kunnáttu á grunntökum. Nemendur þurfa að sýna köst og varnir gegn árásum. Fimm mánuðir þurfa að líða í næsta próf. |
 |
2.500 isk |
6. Kyu
Grænt belti fá þau sem náð hafa góðu valdi á köstum, spörkum og lásatökum. Auk þess þurfa nemendur á sýna varnir gegn árásum, kyrkingum í gólfi og sóp æfingar. Fimm mánuðir þurfa að líða í næsta próf. |
 |
3.000 isk |
5. Kyu
Blátt og hvítt er fyrri hluti bláa beltisins. Hér er meira um spörk og samsettar æfingar. Þessi hluti er oft nefndur sparkhluti bláa beltisins. Fimm til sex mánuðir þurfa að líða til þess að komast í næsta próf. |
 |
3.500 isk |
4. Kyu
Blátt er seinni hluti í gráðun þessa beltis. Hér er meira um köst og samsettar kast æfingar. Þessi hluti er oft nefndur kasthluti bláa beltisins. Sex mánuðir þurfa að líða til þess að komast í næsta próf. |
 |
4.500 isk |
3. Kyu
Fjólublátt er erfitt próf og fara ekki margir svo hátt. Nú þarf allt að vera 100%: æfingarnar, stíllinn, lásarnir og frágangur. Hérna er mikið um samsett brögð, fleiri lásar og þrjár kataæfingar. Hér er nokkuð um hættuleg köst. Þau sem hafa náð þetta langt er orðin mjög góð í íþróttinni. Nú þurfa að líða fimm mánuðir í næsta próf. |
 |
6.000 isk |
2. Kyu
Brúnt og hvítt er fyrri hluti brúna beltisins. Hérna er prófað í vörnum gegn árásum tveggja eða fleiri andstæðinga. Hér koma ný og tæknilegri spörk til sögunnar. Fimm til sex mánuðir þurfa að líða í næsta próf. |
 |
7.000 isk |
1. Kyu
Brúnt er seinni hluti brúna beltisins Hér þurfa nemendur að gera skil á sérstökum köstum og sýna að þau geti ráðið við andstæðing(a) með einni hendi. Þau þurfa að geta kastað jafn vel frá hægri og vinstri. Eitt ár þarf að líða til þess að komast í næsta próf. |
 |
24.000 isk |
1. Dan
Svart er markmið margra. Hér þurfa nemendur að vera orðnir mjög færir í öllum brögðum frá hvíta og upp í svarta. Hér er kennt hvernig á að losa sig úr þeim lásum og brögðum sem kennd hafa verið hingað til. Hér þurfa nemendur að kunna skil á líkamsbyggingu manneskjunnar, uppbygging beina og líffærafræði. Nemendur er spurður um þetta á prófi. Einnig er spurt úr öllum beltum hér að framan. Tvö ár þurfa að líða áður en leyfilegt er að taka 2.dan. |
| |
30.000 isk |
2. Dan
Margir tala um 2. dan sem vopnabeltið. Hér er krafist þekkingar á ýmsum vopnum; nunchaku, kama, tonfa, sai, katana, bo og jo.
Próf í þessu belti reynir á þekking iðkandans á vopnum og meðferð þeirra, ásamt flóknum brögðum. Nú þurfa að líða 3 ár í næsta belti. |
| |
|
3. Dan Meistargráða
Inniheldur meira af vopnum og samsettum brögðum. Hér reynir á samhæfni og snerpu nemandans. Í þessu prófi eru nokkrar kata æfingar sem hver um sig eru fleiri tugir hreyfinga. Hér er um meistargráðu að ræða. Nú þurfa að líða fjögur ár þar til hægt er að taka næsta belti. |
| |
|
4. Dan Meistargráða
Hér er farið í upprifjun á 1.dan til 3.dan. Upprifjun allra vopna og samsetninga frá 1.dan til 4. dan, ásamt mörgum nýjum brögðum. |
| |
|
5.Dan
Meistaragráða |
| |
|
6.Dan
Meistargráða |