Spennandi tímar framundan hjá Ju-Jitsu‏

Nýtt Dojo - Ármúla 19Það má segja að það lítur út fyrir að það verður spennandi vor hjá okkur í Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur. Í síðustu viku var skrifað undir leigusamning að nýju æfingarhúsnæði Ju-Jitsufélagsins sem er að Ármúla 19 (sjá kort).

Núverandi æfingarhúsnæði okkar að Faxafeni hefur verið aðsetur okkar undanfarin 10 ár og okkur hefur liðið vel þar enda fínt dojo. En núna er komið að kaflaskiptum í sögu félagsins með því að við erum að komast í mun stærra og henntugara húsnæði.



Nýja húsnæðið er að heildarstærð u.þ.b. 320 m2 að innanmáli og þar af verður æfingasalurinn u.þ.b. 190 m2 þannig að það ætti að vera nóg pláss fyrir okkur að æfa.

Eins og er er verið að setja upp búningsklefa og sturtuaðstöðu ásamt því að mála alla höllina til að allt verði sem flottast þegar Ju-Jitsuið flytur inn.

Það er von mín að geta leyft ykkur að fylgjast með gangi mála með uppbyggingu á nýju húsnæði okkar að Ármúla 19, með því að setja myndir og lýsingar á gang mála m.a. inná facebooksíðu okkar.

Ég vil nota tækifærið og óska ykkur öllum til hamingju með nýtt húsnæði og ég vonast eftir því að geta sýnt ykkur höllina von bráðar en við eigum að fá húsnæðið afhent tilbúið 1. Apríl nk.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 11:10