| Samúðarkveðjur vegna fráfalls Soke Robert Clark. |
|
Kæru vinir. Vegna fráfalls Soke Robert Clark viljum við hjá Ju-Jitsu Iceland votta fjölskyldu hans, vinum og öllum félögum World Ju Jitsu Federation okkar dýpstu samúð. World Ju Jitsu Federation, og reyndar allir innan Bodo sportsins, sjá nú á bak miklum kennara og fræðimanni innan íþróttarinnar.
Það hefur verið mikill heiður fyrir okkur hjá Ju-Jitsu Iceland að fá að njóta leiðsagnar Soke Robert Clark í sjálfsvarnaríþróttinni Ju-Jitsu og við viljum ávallt minnast góðs vinar og lærimeistara með hlýhug. Nú bíður okkar mikið starf að halda á lofti því góða og öfluga verki sem Soke Robert Clark skilur eftir sig. Okkar von er sú að allir þeir sem unna World Ju Jitsu Federation og því námsefni sem Soke Robert Clark setti saman og kenndi víða um veröld, taki höndum saman og haldi stolt á lofti merki hans til framtíðar og honum til heiðurs. Hugur okkar og bænir eru sérstaklega hjá fjölskyldu Soke Robert Clark.
Samúðarkveðjur frá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur (Ju-Jitsu Iceland)
Sensei Magnús Ásbjörnsson
|
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 16. febrúar 2012 16:49 |
Ertu byrjandi?
Mest skoðað
Nýjustu greinarnar
![]()
