Sjálfsvarnarskólinn
Velkomin á heimasíðu Ju Jitsufélags Reykjavíkur.

Á síðunni finnur þú upplýsingar um starfsemi félagsins, æfingartíma, æfingargjöld, gráðun og fleira.  
Þeir sem vilja æfa ju jitsu geta skráð sig hér.

Við bjóðum öllum tvo fría prufutíma. Það er besta leiðin til að komast að því hvort þetta hentar ykkur. Hafið samband við yfirkennara á netfangið sensei@sjalfsvorn.is eða í síma 863-2804.

Áður en þú sendir tölvupóst, endilega kíktu á "spurt og svarað" (FAQ), og athugaðu hvort þú fáir svar við spurningu þinni.

Síðast uppfært: Föstudagur, 24. september 2010 10:30
 
Tenglar

 

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 05. september 2010 20:54
 
Lög og reglar

 Lög Félagsins

1.gr. Félagið heitir Jiu Jitsufélag Reykjavíkur. P.O.Box 1647. 121 Reykjavík. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2.gr. Tilgangur félagsins er að iðka íþróttina Ju Jitsu og vinna að útbreiðslu hennar.

3.gr. Félagar geta orðið allir þeir sem þess æskja og stjórn félagsins samþykkir.

4.gr. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfundur félagsins skal haldinn í febrúar/mars ár hvert. Til fundarins skal boða bréflega eða á annan sannanlegan hátt með a.m.k. viku fyrirvara og skal getið dagsskrár í fundarboði. Málefni sem félagar óska eftir að tekin verði fyrir á fundinum skulu hafa borist stjórn minnst tveimur vikum fyrir aðalfund.  Rétt til fundarsetu með öllum réttindum hafa skuldlausir félagar.

 

Dagsskrá aðalfundar:

1. Fundarsetning.
2. Kosnir fundarstjóri og fundarritari.
3. Lögð fram ársskýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræða um hana.
4. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar, umræða og atkvæðagreiðsla.
5. Nefndir gefa skýrslur og umræður um þær.
6. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
7. Kosning fastra nefnda ef við á.
8. Lagabreytingar ef fyrir liggja.
9. Kosin stjórn:
a) kosinn formaður
b) kosnir fjórir aðalstjórnarmenn
c) kosnir tveir varamenn í stjórn
d) kosinn endurskoðandi og annar til vara.
10. Aðrar tillögur sem borist hafa til stjórnar.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.

 

Á aðalfundi fer hver félagi með eitt atkvæði og ræður einfaldur meirihluti úrslitum, nema varðandi lagabreytingar,  þá þarf samþykki 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna til þess að breytingar nái fram að ganga. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

 

5.gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Ársreikningar skulu komnir til endurskoðanda eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.

6.gr. Stjórn félagsins fer með yfirstjórn þess á milli aðalfunda. Hana skipa formaður, kosinn sérstaklega á aðalfundi, og fjórir meðstjórnendur, allir kosnir á aðalfundi. Stjórnin skiptir með sér verkum að afloknum aðalfundi: varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.  Stjórnarfundi skal halda a.m.k. mánaðarlega og boðar formaður til þeirra.

7.gr. Tillögu um að leggja félagið niður verður að leggja fyrir á lögmætum aðalfundi og skal  tillagan send félagsmönnum með fundarboðinu. Til þess að slík tillaga nái fram að ganga þarf helmingur félagsmanna að sitja fundinn og 2/3 þeirra að samþykkja tillöguna. Komi ekki svo margir til fundarins, skal boða til nýs fundar með tveggja vikna fyrirvara og skal hann haldinn innan fjögurra vikna og er sá fundir ályktunarhæfur án tillits til fjölda fundarmanna.

8.gr. Lögum þessum verður ekki breytt nema á reglulegum aðalfundi félagsins og þá með samþykki 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna.

9.gr. Lög þessi og síðari breytingar á þeim öðlast gildi þegar framkvæmdastjórnir ÍBR og ÍSÍ hafa staðfest þau/þær, sbr. lög ÍBR og ÍSÍ.

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 07. september 2010 13:03
 
Félagið

 

Stjórn Ju Jitsu Félagsins 2010 - 2011


Formaður: Unnsteinn Alfonsson formadur@sjalfsvorn.is
Ritari: Felix Högnason ritari@sjalfsvorn.is
Gjaldkeri: Kristján D. Sigurbergsson gjaldkeri@sjalfsvorn.is
Meðstjórnendur:  

Sigurlaug G. Ingólfsdóttir

Magnús Ásbjörnsson

Jón Ólafsson

Gerard Chinotti

 

 

   

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 08. september 2010 22:51
 
Hver erum við?

Ju jitsufélag Reykjavíkur (JJR) var stofnað árið 1997 og hefur verið aðili að Íþróttabandalagi Reykjavíkur frá árinu 1999. Markmið félagsins er að stuðla að útbreiðslu hefðbundins ju jitsu, sjálfsvarnaríþróttar sem á uppruna sinn að rekja til Japans og er talin ein elsta íþrótt sinnar tegundar. Af hennar meiði hafa meðal annars sprottið sjálfsvarnarlist eins og Aikido og Hapkido, og bardagaíþróttir eins og Judo og Brazilian jiu jitsu. Ekki er keppt í hefðbundnu ju jitsu af því tagi sem JJR leggur stund á.

JJR er aðili að heimssamtökum ju jitsufélaga, World Ju Jitsu Federation (WJJF), en meistari skólans er Soke Robert Clark stofnandi samtakanna. Heimssamtökin leggja áherslu á skipulagða þjálfun sem tekur mið af vandaðri alþjóðlegri þjálfunaráætlun, þar sem iðkandinn byggir færni sína á breiðum grunni sjálfsvarnartækni, eins og lásum, köstum og hnitmiðaðri spark- og höggtækni. Þjálfunaráætlunin leggur jafnframt grunn að gráðunarkerfi samtakanna en mismunandi litur belta gefa til kynna stöðu nemenda á hverjum tíma.

Allir geta stundað hefðbundið ju jitsu, óháð líkamlegu ásigkomulagi; ungir sem aldnir, konur og karlar, enda er ástundun þessarar íþróttar á forsendum iðkandans, sem fer í gegnum þjálfunaráætlun á eigin hraða.

Kennsla barna og unglinga hjá JJR hófst árið 1999 og eru æfingar ætlaðar fyrir börn frá 8 ára aldri. Börn og unglingar fylgja sérstakri þjálfunaráætlun sem tekur mið af líkamsburði þeirra og andlegum þroska. Barnaæfingar er eðlilega sambland náms og leikja. Börnin læra helstu lása og tök til að verja sig, læra aga og sjálfstjórn og læra að bera virðingu hvert fyrir öðru. Á milli tæknilegra æfinga fá þau óspart tækifæri til útrásar í leikjum og ærslagangi.

Hjá unglingum er auk hefðbundinna æfinga, lögð áhersla á að byggja upp sjálfstraust einstaklingsins og fá þau til að huga að þeim hættum sem þau geta lent í á lífsleiðinni. Lögð er áhersla á að sjálfsvörn er aðeins notuð í neyðartilvikum og að slagsmál leiða aldrei til lausna.

Fullorðnir fylgja þjálfunaráætlun WFFJ sem ætluð er fólki frá 16 ára aldri. Hér er lögð meiri áhersla á fjölbreytt köst og flókna lása til þess að ná stjórn á andstæðingnum. Hér verða iðkendur að tileinka sér ákveðna þekkingu á líffæra- og lífeðlisfræði sem tengjast íþróttinni og helstu atriðum laga og reglna um nauðvörn og valdbeitingu. Í þessum hópi eru iðkendur sem fyrr segir frá 16 ára aldri og um og yfir sjötugt. Fólk aldrei of gamalt til að byrja að æfa ju jitsu.

Aðalkennarar félagsins eru Dieudonné Gerritsen 5. dan og Magnús Ásbjörnsson 4. dan. Auk þeirra sjá reyndir svartbeltingar um kennslu bæði barna og fullorðinna. Kennarar JJR hafa haldið fjölda námskeiða fyrir starfsfólk stofnana og fyrirtækja sem sinna lög- og heilsugæslu, öryggisvörslu, félagsþjónustu og menntun barna og unglinga. Námskeið eru ávalt sniðin að þörfum þeirra sem leita til kennara félagsins hverju sinni.

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. febrúar 2012 09:32
 
Kennarar
Yfirkennari Ju-Jitsufélags Reykjavíkur:
Sensei Magnús


Sensei Magnús Ásbjörnsson
4. dan.

Ásamt því að vera yfirkennari Ju-jitsufélgs Reykjavíkur er Sensei Magnús aðalkennari fullorðina hjá félaginu.
Magnús hefur æft ju-jitsu frá árinu 1989 fyrst í Noregi í u.þ.b. 3 ár en eftir það aðalega á Íslandi. Hann hefur ásamt því að æfa Ju-Jitsu á Íslandi sótt þekkingu á Ju-Jitsu bæði til Noregs og Bretlands.
Magnús er menntaður rafeindavirki og starfar við það hjá Isavia ásamt því að sinna rekstri og kennslu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur.

Sensei Magnús hóf kennslu á ju-jitsu hjá Ungmennafélagi Biskupstungna 1996 og svo einnig á Selfossi 1998 í samstarfi við Ju-Jitsufélag Reykjavíkur.
Frá árinu 2000 hefur Magnús svo sinnt kennslu hjá Ju-Jitsufélag Reykjavíkur m.a. sem aðalkennari barna og unglinga og árið 2006 tekur hann svo við rekstri félagsins.
Frá 2004 hefur Magnús verið einn af yfirkennurum félagsins og frá haustinu 2011 hefur Magnús verið yfirkennari Ju-Jitsufélagsins.

Sensei Magnús  lauk 4. Dan gráðu í okt. 2010.

 

Sími: 863-2804. Netfang: magnus@sjalfsvorn.is og sensei@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðalkennari barna og unglinga:

Sensei Felix

Sensei Felix Högnason 2. dan.

Sensei Felix er aðalkennari barna og unglinga.
Hann er menntaður þroskaþjálfi og vinnur nú að mastersverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu. Felix hefur sérhæft sig í vinnu með fólki sem sýnir ögrandi hegðun og hefur haldið fjölda námskeiða, m.a. um viðbrögð við hegðunarvanda, notkun þvingunar og valdbeitingar í vinnu með fólki og varnarviðbrögð við alvarlegum hegðunarvanda.

Sensei Felix hefur æft ju jitsu frá árinu 2004. Hann byrjaði að kenna sem aðstoðarkennari barna og unglinga árið 2008 og hefur verið aðalkennari þessa hóps frá árinu 2009.

Sensei Felix lauk 2. Dan gráðu í maí 2010.

Sími: 694-4194. Netfang: felix@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðalkennari byrjendahóps fullorðina:
Sensei Robert


Sensei Robert van Spanje
2. dan.

Sensei Robert er frá Hollandi. Hann hefur æft ýmsar sjálfsvarnaríþróttir og er með blátt belti í Gracie jiu jitsu. Sensei Robert byrjaði að æfa hjá Ju jitsufélagi Reykjavíkur þegar hann kom til Íslands árið 2004.
Robert er menntaður sem grafískur- og vefhönnuður og starfar hjá Iceland Excursions. Meira um hann er hægt að lesa á www.robert.is.
Frá árinu 2008 hefur Robert aðstoðað við kennslu fullorðinna og um áramótin 2011/2012 kemur hann inn sem aðalkennari byrjendahóps fullorðinna. Hann leggur mikla áherslu á raunhæfar æfingar í tengslum við sjálfsvörn og að byggja upp góðan grunn.

Sensei Robert lauk 2. Dan gráðu í maí 2010.

Sími: 866-6094. Netfang: robert@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðrir kennarar Ju-Jitsufélags Reykjavíkur:

Sensei Don

Sensei Dieudonné Gerritsen 5. dan.

Sensei Don hefur verið kennari hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur frá stofnun þess árið 1996 og sem yfirkennari frá 2006. Hann hefur einnig haldið fjölda námskeiða um sjálfsvörn, öryggismál og valdbeitingu fyrir ýmsar starfsstéttir.
Don starfar sem verkefnastjóri flugverndar- og öryggismála flugvalla hjá Isavia.

Sensei Don hætti sem einn tveggja yfirkennara félagsins haustið 2011 en mun kenna nokkra tíma í mánuði ásamt því að vera tæknilegur ráðgjafi Ju jitsufélags Reykjavíkur.

Sensei Don kemur frá Hollandi og hefur æft ýmsar bardagalistir, þar á meðal Tae Kwon Do, Judo og Thaiboxing, og hefur því mikla og breiða þekkingu á sviði sjálfsvarnaríþrótta.

Don lauk 5. dan gráðu í okt. 2010.

 

Sími: 898-1295. Netfang: don@sjalfsvorn.is

 

 



Aðstoðarkennarar:

Fannar

Sempei Fannar Ásbjörnsson 1. Kyu

Fannar hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan janúar 2008 og stefnir á að gráða til 1. Dan í febrúar 2012. Fannar er rafvirki að mennt en stundar núna nám í Tölvunarfræði við Háskóla Reykjavíkur.
Sempei Fannar hefur aðstoðað við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan haustið 2009.




Berglind

Sempei Berglind Chu 4. Kyu

Berglind hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan 2010. Berglind er með meistaragráðu í hjúkrun og vinnur á Landspítala.
Berglind hefur aðstoðað við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan haustið 2011.




María

Sempei María Waltersdóttir 6. Kyu

María hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan 2010. María byrjar sem aðstoðarkennari við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur á vorönninni 2012.





Síðast uppfært: Sunnudagur, 19. febrúar 2012 21:40