|
Hó hó
Senn líður að jólum og við viljum halda í hefðirnar hjá Ju Jitsufélagi Reykjavíkur með því að hafa síðustu æfinguna fyrir jól sameiginlega barna- og fullorðinsæfingu. Jólaæfingin þetta árið fer fram þriðjudaginn 20. desember og hefst kl. 18:30. Áætlað er að æfingin ásamt öðru skralli verði lokið eigi síðar en kl. 20:00. Nýir og gamlir nemendur Ju-Jitsufélags Reykjavíkur hjartanlega velkomnir en einnig allir áhugasamir um Ju-Jitsu sjálfsvörn. Allir hvattir til að taka með sér áhugasama fjölskyldumeðlimi og vini en frammættir mega búast við því að þurfa að taka þátt á einn eða annan máta. Ekki er krafist viðveru allan tímann en mikið yrði ég glaður að sjá alla mæta á réttum tíma og sem flesta halda út Jólaæfinguna allan tímann.
Eins og venja er þá er ætlunin að hafa gaman saman á þessari jólaæfingu, bæði ungir og gamlir, áður en við hverfum inní lokasprettinn að jólastússinu. Krakkarnir ætla að taka gamlingjana í smá kennslustund en þeir eldri beita reynslunni fyrir sig til að hafa ofan af fyrir ungviðinu. Búist er við að kakó og smákökur verði á borðum eftir æfingu. Það væri virkilega gaman ef allir gætu komið með smá sýnishorn af sínum kökubakstri til að deila með hvort öðru.
Frí verður á milli jóla og nýárs en við byrjum aftur snemma í janúar eldspræk. Dagsettning auglýst síðar.
Hlakka til að sjá ykkur öll á Jólaæfingunni. |
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 12. desember 2011 10:03 |