|
Soke Robert Clark er látinn |
|
Það er með sorg í hjarta sem ég flyt ykkur þær sorgar fréttir að okkar mikli lærimeistari Soke Robert Clark er látinn 66 ára að aldri.
Soke Robert Clark var mikils metin innan Bodo íþróttarinnar bæði sem fræðimaður og kennari í Ju-Jitsu sem og öðrum bardagaíþróttum. Soke Robert Clark var stofnandi og aðalstjórnandi World Ju Jitsu Federation en hann var meðal annars höfundur þess kennsluefnis sem við höfum æft og kennt eftir síðastliðin 16 ár hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur.
Soke Robert Clark ferðaðist út um allan heim til að miðla af visku sinni innan Bodo fræðanna bæði verklega, sögulega sem og læknisfræðilega.
Við hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur viljum þakka Soke Robert Clark fyrir alla þá þekkingu og reynslu sem hann hefur miðlað til okkar í þau 16 ár sem við höfum verið hluti af World Ju Jitsu Federation.
Við viljum votta fjölskyldu og vinum Soke Robert Clark okkar dýpstu samúð.

|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 15. febrúar 2012 10:47 |