Nýtt húsnæði og 2012 almanak‏

Almanak 2012Ég vona að allir hafi notið æfingarinnar í kvöld.
Eins og ég tilkynnti á æfingunni í kvöld þá er ráðgert að flytja í nýja húsnæðið okkar að Ármúla 19 í kringum 1. Apríl næstkomandi. Ég vona að allir séu jafn spenntir og ég á að komast í nýtt dojo.

Ju-Jitsualmanakið var einnig auglýst á æfingunni og kostar kr. 1.500 kr., sýningareintak hangir uppi í dojo.


Ég vona að sem flestir sýni þessu áhuga þannig að það geti orðið til þess að árlega verði búið til Ju-Jitsualmanak með myndum frá starfi félagsins öllum nemendum til ánægju og kynningar á félaginu. Við þurfum á ykkar hjálp að halda til að kynna félagið sem víðast á jákvæðan og öflugan hátt. Almanakið er góð kynning t.d. með því að hafa það hangandi á vinnustöðum.

Það er hægt að kaupa almanakið í dojo á æfingartíma.
Sjáumst á æfingu.

 

Síðast uppfært: Laugardagur, 25. febrúar 2012 16:39