Kennarar
Yfirkennari Ju-Jitsufélags Reykjavíkur:
Sensei Magnús


Sensei Magnús Ásbjörnsson
4. dan.

Ásamt því að vera yfirkennari Ju-jitsufélgs Reykjavíkur er Sensei Magnús aðalkennari fullorðina hjá félaginu.
Magnús hefur æft ju-jitsu frá árinu 1989 fyrst í Noregi í u.þ.b. 3 ár en eftir það aðalega á Íslandi. Hann hefur ásamt því að æfa Ju-Jitsu á Íslandi sótt þekkingu á Ju-Jitsu bæði til Noregs og Bretlands.
Magnús er menntaður rafeindavirki og starfar við það hjá Isavia ásamt því að sinna rekstri og kennslu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur.

Sensei Magnús hóf kennslu á ju-jitsu hjá Ungmennafélagi Biskupstungna 1996 og svo einnig á Selfossi 1998 í samstarfi við Ju-Jitsufélag Reykjavíkur.
Frá árinu 2000 hefur Magnús svo sinnt kennslu hjá Ju-Jitsufélag Reykjavíkur m.a. sem aðalkennari barna og unglinga og árið 2006 tekur hann svo við rekstri félagsins.
Frá 2004 hefur Magnús verið einn af yfirkennurum félagsins og frá haustinu 2011 hefur Magnús verið yfirkennari Ju-Jitsufélagsins.

Sensei Magnús  lauk 4. Dan gráðu í okt. 2010.

 

Sími: 863-2804. Netfang: magnus@sjalfsvorn.is og sensei@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðalkennari barna og unglinga:

Sensei Felix

Sensei Felix Högnason 2. dan.

Sensei Felix er aðalkennari barna og unglinga.
Hann er menntaður þroskaþjálfi og vinnur nú að mastersverkefni í hagnýtri atferlisgreiningu. Felix hefur sérhæft sig í vinnu með fólki sem sýnir ögrandi hegðun og hefur haldið fjölda námskeiða, m.a. um viðbrögð við hegðunarvanda, notkun þvingunar og valdbeitingar í vinnu með fólki og varnarviðbrögð við alvarlegum hegðunarvanda.

Sensei Felix hefur æft ju jitsu frá árinu 2004. Hann byrjaði að kenna sem aðstoðarkennari barna og unglinga árið 2008 og hefur verið aðalkennari þessa hóps frá árinu 2009.

Sensei Felix lauk 2. Dan gráðu í maí 2010.

Sími: 694-4194. Netfang: felix@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðalkennari byrjendahóps fullorðina:
Sensei Robert


Sensei Robert van Spanje
2. dan.

Sensei Robert er frá Hollandi. Hann hefur æft ýmsar sjálfsvarnaríþróttir og er með blátt belti í Gracie jiu jitsu. Sensei Robert byrjaði að æfa hjá Ju jitsufélagi Reykjavíkur þegar hann kom til Íslands árið 2004.
Robert er menntaður sem grafískur- og vefhönnuður og starfar hjá Iceland Excursions. Meira um hann er hægt að lesa á www.robert.is.
Frá árinu 2008 hefur Robert aðstoðað við kennslu fullorðinna og um áramótin 2011/2012 kemur hann inn sem aðalkennari byrjendahóps fullorðinna. Hann leggur mikla áherslu á raunhæfar æfingar í tengslum við sjálfsvörn og að byggja upp góðan grunn.

Sensei Robert lauk 2. Dan gráðu í maí 2010.

Sími: 866-6094. Netfang: robert@sjalfsvorn.is.

 

 



Aðrir kennarar Ju-Jitsufélags Reykjavíkur:

Sensei Don

Sensei Dieudonné Gerritsen 5. dan.

Sensei Don hefur verið kennari hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur frá stofnun þess árið 1996 og sem yfirkennari frá 2006. Hann hefur einnig haldið fjölda námskeiða um sjálfsvörn, öryggismál og valdbeitingu fyrir ýmsar starfsstéttir.
Don starfar sem verkefnastjóri flugverndar- og öryggismála flugvalla hjá Isavia.

Sensei Don hætti sem einn tveggja yfirkennara félagsins haustið 2011 en mun kenna nokkra tíma í mánuði ásamt því að vera tæknilegur ráðgjafi Ju jitsufélags Reykjavíkur.

Sensei Don kemur frá Hollandi og hefur æft ýmsar bardagalistir, þar á meðal Tae Kwon Do, Judo og Thaiboxing, og hefur því mikla og breiða þekkingu á sviði sjálfsvarnaríþrótta.

Don lauk 5. dan gráðu í okt. 2010.

 

Sími: 898-1295. Netfang: don@sjalfsvorn.is

 

 



Aðstoðarkennarar:

Fannar

Sempei Fannar Dúi Ásbjörnsson 1. Kyu

Fannar Dúi hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan janúar 2008 og stefnir á að gráða til 1. Dan í febrúar 2012. Fannar er rafvirki að mennt en stundar núna nám í Tölvunarfræði við Háskóla Reykjavíkur.
Sempei Fannar hefur aðstoðað við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan haustið 2009.




Berglind

Sempei Berglind Chu 4. Kyu

Berglind hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan 2010. Berglind er með meistaragráðu í hjúkrun og vinnur á Landspítala.
Berglind hefur aðstoðað við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan haustið 2011.




María

Sempei María Waltersdóttir 6. Kyu

María hefur æft ju-jitsu hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur síðan 2010. María byrjar sem aðstoðarkennari við kennslu barna og unglinga hjá Ju-Jitsufélagi Reykjavíkur á vorönninni 2012.





Last Updated on Wednesday, 07 March 2012 01:11