Japan festival

Japan festival 2012Undanfarin ár höfum við í Ju-Jitsu tekið þátt í Japan Festival sem hefur verið á Háskólatorgi í Háskóla Íslands ár hvert í 7 ár. Enn og aftur hafa forsvarsmenn Japan Festival haft samband við okkur og óskað eftir þáttöku okkar sem við að sjálfsögðu gerum glöð. Sjöunda Japan Festival verður haldin laugardaginn 28 janúar, frá kl. 13:00 til 17:00.

 

Hvenær nákvæmlega Ju-Jitsu sýningin verður er ekki búið að negla niður, en verður vonandi komið á hreint á næstu dögum. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 15-20 mín í hvert atriði/sýningu. Sem stendur er gert ráð fyrir tveimur sýningum, annars vegar Ju-Jitsu og svo hins vegar Kyuudo (Japönsk bogfimi), hugsanlega verður einnig Iaido (Katana sverð) stuttlega sýnt.

Látum þessar upplýsingar endilega berast sem víðast og auglýsum bæði Japan Festival og sýninguna okkar sem verður þar. Við vonumst eftir að geta bæði haft sýningu barna og fullorðina þarna. Við munum fara yfir sýningaratriðin á æfingunum í vikunni og vonumst eftir að þið séuð jákvæð gagnvart því að taka þátt með okkur. Til að sýna viljum við hafa 3-4 börn og 4-5 fullorðnir. En svo er það okkur einnig mikið kappsmál að sem flestir mæti til að horfa á og þarmeð vera þáttakendur líka.

Nánari upplýsingar um Japan Festival er hægt að finna á www.japanfest.net/2012 þó er dagskráin enn í mótun hjá þeim. Hlakka til að heyra frá áhugasömum þáttakendum.

Kær kveðja/Best regards
Sensei Magnús Ásbjörnsson
Yfirþjálfari, Ju-jitsufélag Reykjavíkur GSM: 863 2804

 

Last Updated on Tuesday, 24 January 2012 13:33