|
Ju-Jitsufélag Reykjavíkur auglýsir samkeppni um nýtt logo fyrir félagið. Hér má finna kröfulýsingu fyrir nýtt logo eða félagsmerki Ju-Jitsufélags Reykjavíkur.
Ég vil hvetja þá sem taka þátt í þessari samkeppni og ekki þekkja íþróttina sem við iðkum að koma í heimsókn í aðstöðu okkar að Faxafeni 8 á æfingatímum okkar. Við tökum vel á móti gestum okkar og erum afskaplega áhugasöm að fræða alla um félagið og það sem við erum að gera.
Samkeppnin mun verða auglýst víðar næstu daga en við hvetjum ykkur að kynna samkeppnina fyrir þeim sem gætu haft áhuga á að taka þátt. Skilafrestur samkeppninnar er tvíþættur:
- Rafrænu formi: Til miðnættis 1. febrúar 2012, á netfangið merki@sjalfsvorn.is.
- Prentuðu formi: Til miðnættis 1. febrúar 2012, til Sensei Magnús Ásbjörnsson
Hér má finna gamla lógóið
Nánari upplýsingar um samkeppnina gefur Sensei Magnús Ásbjörnsson. Fyrirspurnir sendist á sensei@sjalfsvorn.is
|
|
Last Updated on Thursday, 12 January 2012 08:15 |