Æfingabúðum með Sensei Simon frestað‏

 

Sensei Simon Rimmington, Sensei Don, Sensei MagnúsÞví miður verð ég að tilkynna að áður auglýstum æfingarbúðum með Sensei Simon Rimington sem áttu að fara fram næstkomandi helgi, 3-4 Des, þarf að fresta. Er það vegna þess að Sensei Simon slasaðist og má ekki kenna né æfa næstu vikurnar. Við erum þó ekki af baki dottin og stefnum á að halda æfingabúðir með Sensei Simon Rimington eftir áramót eða helgina 14-15 janúar 2012. Þó það sé mjög leiðinlegt að fresta æfingabúðunum núna þá viljum við frekar fá Sensei Simon hingað í heimsókn þegar hann er heill og getur beitt sér að fullu við kennslu eins og honum er einum lagið.

Hlakka til að sjá ykkur á æfingu.

 

Last Updated on Tuesday, 07 February 2012 08:55