|
Eins og greint var frá á æfingu í síðustu viku þá eigum við von á heimsókn af Sensei Simon Rimington sem er okkar tengiliður og meistari hjá World Ju Jitsu Federation (WJJF).
Við erum sem sagt aðilar að World Ju Jitsu Federation sem hefur aðalstöðvar á Englandi og við reynum að stuðla að því að fá heimsókn frá þeim að minnsta kosti einu sinni á ári og þá aðalega Sensei Simon Rimington.
Sensei Simon Rimington er með 7. DAN og rekur nokkra Ju Jitsuklúbba kringum Manchester og Chester á Englandi. Sensei Simon hefur langa og mikla reynslu af kennslu og þjálfun innan Ju Jitsu sem og annara sjálfsvarnaíþrótta en í dag leggur hann eingöngu áherslu á Ju Jitsu. Sensei Simon Rimington er einn af nánustu nemendum og starfsmönnum Soke Robert Clark sem er höfundur kennsluefnis sem við kennum eftir og stjórnandi WJJF. Það er linkur inná heimasíðu Sensei Simon Rimington á heimasíðu okkar www.sjalfsvorn.is endilega skoða það.
Æfingabúðir og DAN gráðun áttu að vera verða fyrstu helgina í nóvember en þar sem Sensei Simon Rimington slasaði sig verðum við að fresta þeim um 4 vikur og verða þær því 3. og 4. desember í janúar 2012 í staðinn. Við reynum að setja upp áhugaverða æfingadagskrá sem ætti að passa fyrir alla og ég vona virkilega að sem flestir taki þessa daga frá til að æfa undir leiðsögn þessa frábæra Ju-Jitsukennara. Æfingabúðirnar eru opnar öllum og vonast ég til að fá aðstoð hjá ykkur til að auglýsa þær sem víðast.
Kostnaður fyrir fullorðna er fyrir staka tíma kr. 3,000,- en öll helgin er á kr. 7.000,-
Barna og unglingahóparnir okkar munu fá æfingar undir stjórn Sensei Simon Rimington báða dagana og vona ég að allir þeir sem æfa hjá okkur geti tekið þátt ásamt öðrum sem áhuga hafa. Reynt er að halda kostnaði niðri eins og mögulegt er en verðið fyrir krakkana er kr. 2.000,- fyrir helgina en kr. 1.500,- fyrir stakan dag. Opnað verður bráðlega fyrir skráningar á æfingabúðirnar á heimasíðunni okkar www.sjalfsvorn.is
Ég mun minna ykkur á þetta aftur þegar nær dregur ásamt því að senda ykkur dagskrá og aðrar upplýsingar. Endilega hafið samband ef þið hafið hugmyndir kringum svona uppákomu til kynningar eða annað.
|
|
Last Updated on Thursday, 08 March 2012 12:50 |