Seniorgráðun 5. nóv 2011‏

Góðan daginn.

Eins og komið hefur fram á æfingum þá þarf að fresta æfingabúðunum með Sensei Simon Rimington sem voru fyrirhugaðar 5 – 6. Nóv. Í stað æfingabúðanna hef ég ákveðið að hafa seniorgráðun og verða þær laugardaginn 5. Nóv á venjulegum æfingatíma kl. 11:30 – 13:00. Nýtt fyrirkomulag á gráðun er í burðaliðnum og vil ég því biðja þá sem stefna á að gráða 5. Nóv að fylla út nýtt umsóknareyðublað fyrir gráðun sem liggur frammi í Dojo.


Fyrirkomulagið er eins og áður segir enn í mótun en í grundvallaratriðum gengur það út á eftirfarandi:

  • Þeir sem ætla í gráðun sæki um það á áðurnefndum eyðublöðum minnst tveim vikum fyrir gráðun (ein vika núna).
  • Gengið skal frá gráðunargjöldum á æfingum fyrir gráðunardag. Þá gefst einnig tími til að fara yfir stöðu æfingagjalda og klára útistandandi mál þar að lútandi.
  • Sensei lætur alla umsóknaraðila vita um niðurstöðu umsóknarinnar í síðasta lagi tveim dögum fyrir gráðun.


Ástæða þessara breytinga er til að bæta utanumhald og einnig er það von mín að við séum að vinna að því að bæta standardinn hjá okkur ennfrekar. Þetta er semsagt fyrstu drög að þessu fyrikomulagi og því má búast við því að það taki einhverjum breytingum fyrir næstu gráðun. En ég vonast eftir að fá sent frá ykkur góðar ábendingar.


Sjáumst á æfingu.

Last Updated on Tuesday, 01 November 2011 15:13